Fréttir
Lífið
Íþróttir
Viðskipti
Vefmiðlar



Simmi og Jói

Sigmar Vilhjálmsson og Jóhannes Ásbjörnsson, eða Simmi og Jói eins og þeir eru kallaðir, eru kynnar Wipeout Ísland og hafa það vandasama verk lýsa gangi mála í þrautabrautinni. Félagarnir skipuðu sér í hóp vinsælustu sjónvarpsmanna landsins er þeir fóru á kostum sem kynnar Idol stjörnuleitar. Á engan er hallað þótt sagt sé að Simmi og Jói hafi ósjaldan stolið senunni í Idol Stjörnuleit, en tvíeykið var sem órjúfanlegur hluti af Idolinu. Simmi og Jói byrjuðu í útvarpi og slógu svo rækilega í gegn þegar þeir birtust á skjánum sem fyrstu stjórnendur spjallþáttarins galsafulla 70 mínútur. Þeir hafa komið víða fram í gegnum árin og stjórna nú m.a. vinsælum útvarpsþætti á Bylgjunni á laugardagsmorgnum.


 
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli