Um þáttinn
Wipeout er skemmtiþáttur fyrir alla fjölskylduna þar sem þátttakendur taka þátt í eins konar þrautakóngi á stærstu hindrunarbraut heims með bráðfyndnum afleiðingum. Þátttakendur eru af öllum stærðum, gerðum og aldri og þurfa að komast á sem stystum tíma í gegnum fjórar átakanlegar þrautabrautir með það að markmiði að standa uppi sem Wipeout-meistari.
Um leið og rauðu boltarnir birtust á skjá landsmanna slógu þeir rækilega í gegn og ljóst varð að Íslendingar yrðu að fá að spreyta sig á brautinni með tilheyrandi busli, skvampi og skellum. Mikill handagangur varð í öskjunni þegar skráning fyriqr íslensku útgáfu Wipeout hófst og ljóst var að margir vildu sæti í ævintýraferð Stöðvar 2 til Argentínu, þar sem tökur fóru fram í byrjun október. Hátt á 4000 manns sóttust eftir að komast til Argentínu og úr þeim hópi voru valdir vel yfir hundrað til að takast á við þetta stærsta sjónvarpsævintýri ársins. Hið hláturmilda Friðrika Hjördís Geirsdóttir, betur þekkt sem Rikka, var með í för og ræddi við þátttakendur og hinir einu og sönnu Simmi og Jói eru kynnar þáttarins og sjá um að lýsa því sem fyrir augum ber á sinn einstaka hátt.
Wipeout kemur frá sömu framleiðendum og færðu okkur Fear Factor og Extreme Makeover: Home Edition og hafa þættirnir farið sigurför um heiminn allt frá því að þeir voru frumsýndir í Bandaríkjunum vorið 2008. Nú hafa þættirnir verið framleiddir í 21 löndum og má þar nefna Svíðþjóð, Bretland, Þýskaland, Nýja Sjáland, Rússland, Noreg, Argentínu og Sádi-Arabíu.